Borgarbraut 55-59 í Borgarnesi, breyting á deiliskipulagi. Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Borgarbraut 55-59 í Borgarnesi. Markmið breytinganna er að sameina lóðir 57-59 í eina lóð m.t.t. eignaskiptasamninga. Einnig að leyfa útakstur frá bílaplani lóðar nr. 57-59 að Kveldúlfsgötu um skábraut, þar sem vinstri beygja verði bönnuð þegar ekið er út á Kveldúlfsgötu. Innakstur verður eftir sem áður bannaður frá Kveldúlfsgötu. Engin breyting verður gerð á byggingarmagni lóðanna þar sem lóðirnar eru þegar fullbyggðar. Málsmeðferð var skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Borgarnesi, 8. mars 2019.
Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri.
|