Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákveðið eftirfarandi:
- Að afmarkað verði bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða við Ekjuvog 28.
- Að afmarkað verði bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða við Þverholt 15.
- Að afmarkað verði bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða við Víðimel 60.
- Að afmarkað verði bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða við Skálagerði 3.
- Að afmarkað verði bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða við Miðstræti 3a.
- Að afmarkað verði bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða við Álakvísl 31.
Bílastæði er merkt með umferðarmerkinu D01.21/22 samkvæmt reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra.
- Að bannaður verði akstur hópbifreiða norður (upp) Njarðargötu frá Sóleyjargötu.
Bannið skal merkt með umferðarmerkinu B03.32 og undirmerki J með áletrun innakstur hópbifreiða bannaður.
Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.
F.h. lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, 29. apríl 2019,
Hulda Elsa Björgvinsdóttir staðgengill.
|