Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 365/2021

Nr. 365/2021 31. mars 2021

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps sam­þykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

 

Deiliskipulagsbreyting, Ásborgir 44 og 46.
Breyting er gerð á gildandi deiliskipulagi Ásborga í landi Ásgarðs, sem felur í sér sameiningu lóða Ásborga 44, L199041 og Ásborga 46, L199042. Að sameiningu lokinni fær lóðin stað­fangið Ásborgir 44 og verður 12.413 m² að stærð.
Samþykkt í sveitarstjórn 20. janúar 2021.

 

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

 

Laugarvatni, 31. mars 2021.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Vigfús Þór Hróbjartsson.


B deild - Útgáfud.: 6. apríl 2021