Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1065/2019

Nr. 1065/2019 14. nóvember 2019

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 344/2013 um frjálsa þátttöku fyrirtækja og stofnana í umhverfisstjórnunarkerfi Evrópusambandsins (EMAS).

1. gr.

Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein sem orðast svo:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/2026 frá 19. desember 2018 um breytingu á IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1221/2009 um frjálsa aðild fyrir­tækja/stofn­ana að umhverfisstjórnunarkerfi Bandalagsins (EMAS), sem vísað er til í tölulið 1ea, I. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 131/2019 frá 8. maí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 49 frá 20. júní 2019, bls. 127-133.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/2026 frá 19. desember 2018 um breytingu á IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1221/2009 um frjálsa aðild fyrir­tækja/stofn­ana að umhverfisstjórnunarkerfi Bandalagsins (EMAS).

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. tölul. 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunar­varnir. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 14. nóvember 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2019