Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1532/2020

Nr. 1532/2020 15. desember 2020

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Grýtubakkahrepps vegna verslunar og þjónustu í Skælu.

Skipulagsstofnun staðfesti 15. desember 2020 breytingu á aðalskipulagi Grýtubakkahrepps 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 7. september 2020.
Í breytingunni felst að um 10 ha landbúnaðarsvæði nyrst á Þengilhöfða sunnan Grenivíkur er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu (209VÞ) þar sem áformuð er uppbygging hótels.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 15. desember 2020.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 11. janúar 2021