Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1061/2022

Nr. 1061/2022 14. september 2022

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1000/2005 um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir.

1. gr.

Í stað III. viðauka við reglugerðina kemur nýr viðauki, sem er birtur með þessari reglugerð.

 

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/367 frá 4. mars 2020 um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB að því er varðar að koma á matsaðferðum fyrir skaðleg áhrif af hávaða í umhverfinu, sem vísað er til í tölulið 32g VI. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 356/2021, þann 10. desember 2021.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu, 14. september 2022.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.

 

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 16. september 2022