1. gr.
Byggingarfulltrúi Fjarðabyggðar fer með verkefni sem mælt er fyrir um í lögum nr. 160/2010 um mannvirki og ákvæðum í þeim reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna, þar á meðal útgáfu byggingarleyfa.
2. gr.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis af hálfu byggingarfulltrúa, samkvæmt III. kafla laga um mannvirki, er að umhverfis- og skipulagsnefnd hafi samþykkt útgáfuna, en nefndin annast verkefni byggingarnefndar, sbr. samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 252/2022 ásamt viðaukum og 7. gr. laga um mannvirki.
3. gr.
Byggingarfulltrúi skal hafa samráð við umhverfis- og skipulagsnefnd um hvert það mál sem hann telur að varði verksvið nefndarinnar.
Byggingarfulltrúi skal leita samþykkis umhverfis- og skipulagsnefndar áður en byggingarleyfi er veitt, varði breyting á mannvirki útlit þess og form, nema breyting sé óveruleg, sbr. 5. mgr. 9. gr. laga um mannvirki.
4. gr.
Um málsmeðferð gilda að öðru leyti, eftir því sem við á, ákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, laga nr. 160/2010 um mannvirki, skipulagslaga nr. 123/2010, samþykktar um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 252/2022 og stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
5. gr.
Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur sett samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um afgreiðslu byggingarfulltrúa Fjarðabyggðar nr. 820/2013.
Samþykkt þessi um byggingarnefnd í Fjarðabyggð var staðfest af innviðaráðherra 31. ágúst 2022 og birtist hér með skv. 6. mgr. 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
Fjarðabyggð, 13. september 2022.
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri.
|