Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 477/2021

Nr. 477/2021 30. apríl 2021

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 750/2017 um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota drykkjarvöruumbúðir.

1. gr.

4. málsl. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Skilagjald skal nema 16,22 kr. án virðisaukaskatts á hverja umbúðaeiningu.

 

2. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Umsýsluþóknun skal leggja til viðbótar skilagjaldi á hverja umbúðaeiningu úr stáli, áli, gleri og plastefni og skal fjárhæð hennar án virðisaukaskatts vera 6,60 kr. á umbúðir úr stáli, 0,80 kr. á umbúðir úr áli, 12,30 kr. á umbúðir úr gleri stærri en 500 ml, 9,40 kr. á umbúðir úr gleri 500 ml og minni, 4,30 kr. á umbúðir úr lituðu plastefni, 2,40 kr. á umbúðir úr ólituðu plastefni og 1,40 kr. á umbúðir úr ólituðu plastefni sem er a.m.k. 35% endurunnið.

 

3. gr.

Í stað orðanna „tollstjóra“ í 2. mgr. 4. gr. og „tollstjóri“ í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur í viðeigandi beygingarfalli: Skatturinn.

 

4. gr.

2. málsl. og 3. málsl. 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Skal endurgreiðslan þannig nema samtals 16,22 kr. án virðisaukaskatts á hverja umbúðaeiningu. Þó skulu líða 2 mánuðir frá hækkun álagðs skilagjalds þar til Endurvinnslan hf. hækkar endur­greiðslu til neytenda fyrir sérhverjar umbúðir, sem skilað verður, úr 16,00 kr. í 18,00 kr. með virðis­auka­skatti.

 

5. gr.

2. málsl. 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Félagið skal stuðla að því að umbúðir fari til undirbúnings fyrir endurnotkun, endurvinnslu eða annarrar endurnýtingar í samræmi við forgangsröðun við meðhöndlun úrgangs, sbr. lög nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, eða koma þeim annars til förgunar.

 

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfis­mengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, og öðlast gildi 1. maí 2021.

 

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu 30. apríl 2021.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. apríl 2021