Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1021/2021

Nr. 1021/2021 26. ágúst 2021

AUGLÝSING
um verndarsvæði á Suðurlandi – vatnasvið Hólmsár í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar.

1. gr.

Um friðlýsinguna.

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið, á grundvelli verndarflokks þingsályktunar nr. 13/141 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, frá 14. janúar 2013, að friðlýsa vatnasvið Hólmsár: 20 Hólmsárvirkjun við Einhyrning, með miðlun, í Skaftárhreppi og Rangárþingi ytra gagn­vart orkuvinnslu á grundvelli 53. gr. laga nr. 60/2013, um náttúruvernd.

Verndarsvæðið er 196 km² að stærð.

 

2. gr.

Markmið friðlýsingarinnar.

Tilgangur og markmið friðlýsingarinnar er að vernda vatnasvið Hólmsár: 20 Hólmsárvirkjun við Einhyrning, með miðlun gegn orkuvinnslu, sbr. 1. gr.

 

3. gr.

Mörk verndarsvæðisins.

Mörk verndarsvæðisins eru sýnd á korti sem birt er með auglýsingu þessari í viðauka I og afmark­ast af þeim hnitum sem gefin eru upp í ISN93 hnitakerfi í viðauka II.

Friðlýsingin nær til alls vatnasviðs Hólmsár að efstu mörkum fyrirhugaðs lóns virkjunarkosts 19 Hólmsárvirkjun við Einhyrning, án miðlunar eins og hún er kynnt í 2. áfanga rammaáætlunar.

 

4. gr.

Mannvirkjagerð og orkurannsóknir.

Orkuvinnsla fallvatna með uppsett rafafl 10 MW eða meira innan marka svæðisins er óheimil. Ekki er heimilt að veita leyfi tengd orkurannsóknum eða orkuvinnslu á verndarsvæðinu vegna virkjunar fallvatna með uppsett rafafl 10 MW eða meira. Að fengnu samþykki Umhverfisstofnunar og að undangenginni umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands er heimilt að stunda yfirborðsrannsóknir á verndarsvæðinu.

 

5. gr.

Viðurlög.

Brot gegn friðlýsingu þessari varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, sbr. 90. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013.

 

6. gr.

Gildistaka.

Friðlýsingin öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 26. ágúst 2021.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

 

VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 9. september 2021