Frostaskjól 24. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 16. ágúst 2019, breytingu á deiliskipulagi Eiðsgranda, stofnanasvæði vegna lóðarinnar nr. 24 við Frostaskjól. Breytingin felst í því að afmarkaður er byggingarreitur fyrir núverandi hús og eina færanlega stofu til viðbótar ásamt tengigangi. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Mjölnisholt 4, 6, 8 og 10. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, þann 6. júní 2019, breytingu á deiliskipulagi Hampiðjureits vegna lóðanna nr. 4, 6, 8 og 10 við Mjölnisholt. Í breytingunni felst að hækka húsin, sameina lóðirnar nr. 6 og 8 og byggja sameiginlegan stigagang/lyftuhús, gera niðurgrafna bílgeymslu á lóðunum nr. 6, 8 og 10, útbúa bílastæði fyrir rafmagnsbíl í bakgarði lóðar nr. 4 og geymsluskúr á baklóð lóðar nr. 6. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Kirkjusandur. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, þann 21. ágúst 2019, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kirkjusands. Breytingin felst í því að lóðamörkum er breytt lítillega til að íbúðarhús uppfylli kröfur um bílastæði innan lóðar. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 27. ágúst 2019.
Björn Axelsson.
|