Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 117/2022

Nr. 117/2022 19. desember 2022

AUGLÝSING
um frestun á fundum Alþingis.

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra hefur forseti Íslands gefið út svofellt bréf um frestun á fundum Alþingis:

 

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

 

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 153. löggjafarþings, frá 16. desember 2022 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 23. janúar 2023.

 

Gjört á Bessastöðum, 16. desember 2022.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Katrín Jakobsdóttir.“

 

Alþingi samþykkti hinn 16. desember 2022 ályktun um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Samkvæmt framangreindu umboði og með skír­skotun til samþykkis Alþingis var fundum Alþingis, 153. löggjafarþings, frestað hinn 16. desember 2022.

 

Forsætisráðuneytinu, 19. desember 2022.

 

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Páll Þórhallsson.


A deild - Útgáfud.: 20. desember 2022