Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 669/2021

Nr. 669/2021 20. maí 2021

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Akureyrarbæ.

Breyting á deiliskipulagi Óseyrar, sunnan Krossanesbrautar.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar samþykkti þann 24. febrúar 2021 deiliskipulags­breytingu fyrir Óseyri 2 og 2a.
Breytingin felur í sér breytt lóðarmörk á milli lóðanna 2 og 2a, niðurfellingu byggingarreits á lóð 2a og nýjan byggingarreit á lóð 2, nýtingarhlutfall hækkar á lóð 2, kvöð um bílastæði fellur út á lóð 2a og kvöð er sett á um girðingu á lóðarmörkum  meðfram Glerá fyrir báðar lóðirnar.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

 

F.h. Akureyrarbæjar, 20. maí 2021,

 

Margrét Mazmanian Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.


B deild - Útgáfud.: 8. júní 2021