1. gr.
Af hundum og köttum í Strandabyggð skal innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um gæludýrahald í Strandabyggð nr. 580/2022 sbr. 17. gr.
2. gr.
Við leyfisveitingu gæludýra skal innheimta skráningargjald sem hér segir:
|
Nýskráning hunds |
kr. |
14.295 |
|
Nýskráning kattar |
kr. |
8.995 |
|
Aukagjald fyrir nýtt merki |
kr. |
1.250 |
Innifalið í skráningargjaldi er merki, árleg skoðun, hópvátrygging og umsýslugjöld sveitarfélagsins. Ekki er innheimt eftirlitsgjald á skráningarári. Innheimt er hlutfallslega frá þeim mánuði sem dýrið er skráð. Veittur er afsláttur kr. 7.850 af skráningargjaldi ef eigandi hefur sótt viðurkennt hundaþjálfunarnámskeið og sýnir vottorð þess efnis.
3. gr.
Af skráðum gæludýrum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald sem hér segir:
|
Fyrir hund |
kr. |
10.495 |
|
Fyrir kött |
kr. |
6.495 |
Innifalið í eftirlitsgjaldi er árleg skoðun, ormahreinsun, hópvátrygging og umsýslugjöld sveitarfélagsins.
4. gr.
Við hverja afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta gjald, 14.495 kr. Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu. Önnur og þriðja föngun hunds ber kostnað, kr. 29.400. Föngun hunds án leyfis ber kostnað, kr. 34.350. Við hverja afhendingu handsamaðs óskráðs kattar ber að innheimta gjald, 6.495 kr. Að auki skal eigandi greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi kattar. Óskráða ketti má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu.
5. gr.
Undanþegnir eftirlitsgjaldi eru hundar sem notaðir eru til löggæslu- eða björgunarstarfa og skal ljósrit af viðurkenningu um þjálfun þeirra afhendast við umsókn um niðurfellingu eftirlitsgjalds. Heimilt er að ógilda niðurfellingu eftirlitsgjalds sé viðkomandi hundur ekki lengur notaður til löggæslu- eða björgunarstarfa samkvæmt skilgreiningu þessari. Ekki er innheimt eftirlitsgjald af hundum sem að læknisráði eru notaðir til aðstoðar blindu fólki og fötluðu.
6. gr.
Gjalddagi eftirlitsgjalds er 15. nóvember ár hvert og eindagi 15 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Gjöld skv. gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Verð í gjaldskrá þessari fylgir vísitölu neysluverðs eins og hún er 1. janúar ár hvert.
7. gr.
Gjaldskrá þessi sem samþykkt er af sveitarstjórn er sett með heimild í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og samþykkt um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Strandabyggð nr. 580/2022.
Strandabyggð, 9. janúar 2023.
Þorgeir Pálsson sveitarstjóri.
|