1. gr.
Vatnsgjald.
Almennt vatnsgjald skal vera 0,078% af fasteignamati mannvirkja og lóða. Gjalddagar almenns vatnsgjalds eru þeir sömu og bæjarstjórn ákveður hverju sinni vegna álagðra fasteignagjalda í sveitarfélaginu.
2. gr.
Heimæðagjöld.
Gjald vegna heimæðagjalda skal vera sem hér segir:
32 mm rör |
185.350 |
kr. án vsk. |
40 mm rör |
246.886 |
kr. án vsk. |
50 mm rör |
355.263 |
kr. án vsk. |
63 mm rör |
679.642 |
kr. án vsk. |
75 mm rör |
972.351 |
kr. án vsk. |
90 mm rör |
1.208.247 |
kr. án vsk. |
110 mm rör |
1.345.477 |
kr. án vsk. |
140 mm rör |
1.508.984 |
kr. án vsk. |
180 mm rör |
1.811.627 |
kr. án vsk. |
Stærð heimæðar er ákvörðuð af Vatnsveitu Mosfellsbæjar í samræmi við ósk kaupenda um vatnsmagn í umsókn. Þar sem lengd heimæðar er styttri en 20 metrar gildir ofangreind verðskrá. Fyrir hvern metra umfram 20 metra er heimilt að innheimta 1% af heimæðagjöldum viðkomandi málstærðar. Óski húseigandi eftir færslu heimæða að nýjum tengipunkt greiðir hann heimæðagjöld að nýju. Gjald vegna vatnsúðaheimæða er kr. 3.597.187 fyrir hverja heimæðarlögn.
Gjald vegna tengingar vinnuvatns er kr. 99.358 án vsk.
3. gr.
Mælagjöld.
Gjald vegna rennslismæla skal vera sem hér segir/verð án vsk.:
stærð mælis |
kr./dag |
|
15 mm |
33,67 |
án vsk. |
20 mm |
37,00 |
án vsk. |
25 mm |
47,81 |
án vsk. |
32 mm |
52,82 |
án vsk. |
40 mm |
67,09 |
án vsk. |
50 mm |
78,78 |
án vsk. |
80 mm |
212,22 |
án vsk. |
100 mm |
216,58 |
án vsk. |
4. gr.
Graftrargjöld.
Gjald er lagt á vegna ídráttarröra, fleygunar og sprenginga. Vanti ídráttarrör eða ídráttarrör reynist ónothæft greiðist vegna skurðgraftar er gjaldið 9.334 kr./lengdarmetra án vsk.
Reynist nauðsynlegt að fleyga eða sprengja klöpp eða frost er í jörðu bætist eftirfarandi kostnaður við skurðgröft, sbr. 1. mgr., sem innheimtist eftir á.
Klaki/klöpp |
dýpt sm |
kr./lengdarmetra/án vsk: |
klaki/klöpp |
< 30 |
3.339 |
klaki/klöpp |
> 30 |
6.737 |
5. gr.
Aukavatnsgjald.
Aukavatnsgjald til stórnotenda er 42,59 kr./m³ án vsk.
6. gr.
Gjaldskrá þessi sem samþykkt er af bæjarstjórn Mosfellsbæjar er sett með stoð í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur og 11. gr. reglugerðar nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1319/2017.
Mosfellsbæ, 7. janúar 2019.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri.
|