Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 541/2019

Nr. 541/2019 24. apríl 2019

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 596/2014 um gjaldskrá Háskólans á Akureyri vegna þjónustu við nemendur og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á a-lið 2. gr. reglnanna:

  1. í stað tölunnar „4.200“ í 3. mgr. um lánþegaskírteini kemur: 4.500.
  2. í stað tölunnar „2.200“ í 4. mgr. um lánþegaskírteini kemur: 2.500.

2. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar voru í háskólaráði 24. apríl 2019, eru settar með stoð í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. einnig 30. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009, öðlast þegar gildi.

Háskólanum á Akureyri, 24. apríl 2019.

Eyjólfur Guðmundsson rektor.


B deild - Útgáfud.: 6. júní 2019