Breyting á deiliskipulagi 1. áfanga Hellnahrauns, lóðir nr. 8 og 8a við Íshellu. Í samræmi við skipulagslög samþykkti skipulags- og byggingarfulltrúi Hafnarfjarðar á fundi sínum þann 11. ágúst 2020 breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Hellnahrauns, vegna lóðanna að Íshellu 8 og 8a. Deiliskipulagsbreytingin felst í stækkun lóðarinnar að Íshellu 8a og minnkun lóðarinnar að Íshellu 8 sem því nemur. Tillaga þess efnis var grenndarkynnt frá 24. ágúst til 21. september 2020. Engar athugasemdir bárust. Málsmeðferð deiliskipulagsbreytingarinnar var samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Hafnarfirði, 29. september 2020.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Guðrún Guðmundsdóttir.
|