Breyting á deiliskipulagi Selhellu suður, vegna Suðurhellu 12-20. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 8. mars síðastliðinn var samþykkt deiliskipulagsbreyting í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að allir byggingarreitir á lóðinni verða jafn stórir, nýtingarhlutfall hækkar úr 0,82 í 0,84 og að hægt verður að aka milli bygginga innan lóðar. Einnig breytist staðsetning djúpgáma. Uppdráttur ásamt skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hafnarfirði, 15. mars 2023.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Anna Margrét Tómasdóttir verkefnastjóri.
|