Hinn 21. mars 2006 var ráði Evrópusambandsins tilkynnt um samþykki Íslands á ákvörðun ráðsins nr. 2005/728/DIM frá 12. október 2005 þar sem ákveðið er hvaða dag tiltekin ákvæði reglugerðar (EB) nr. 871/2004 um innleiðingu nýrra aðgerða í Schengen-upplýsingakerfið, þ.m.t. í tengslum við baráttuna gegn hryðjuverkum, koma til framkvæmda, sem felur í sér breytingu á samningi sem ráð Evrópusambandsins og lýðveldið Ísland og konungsríkið Noregur gerðu með sér 18. maí 1999 um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 21/2000. Breytingin öðlaðist gildi að því er Ísland varðar 21. mars 2006.
Ákvörðunin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 28. mars 2006.
Geir H. Haarde.
Gunnar Snorri Gunnarsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|