Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 238/2020

Nr. 238/2020 20. mars 2020

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um för yfir landamæri, nr. 866/2017.

1. gr.

Á eftir 5. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 5. gr. a, svohljóðandi:

Ákvæði til bráðabirgða.

Til og með 17. apríl 2020 er útlendingum, sem hvorki eru EES- né EFTA-borgarar, óheimilt að koma til landsins óháð því hvort þeir uppfylla skilyrði 5. gr., auk annarra skilyrða sem fram koma í 106. gr. útlendingalaga.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem hafa gilt dvalarleyfi eða annars konar dvalar- eða búseturétt hér á landi eða í öðru Schengen-ríki eða eiga aðstandendur í þessum sömu ríkjum. Ákvæðið á heldur ekki við um útlendinga sem koma til landsins í brýnum erindagjörðum, þ. á m. eftirtalda aðila:

  1. Farþega í tengiflugi.
  2. Starfsfólk á sviði heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu.
  3. Starfsfólk sem sinnir flutningum á vöru og þjónustu.
  4. Einstaklinga sem hafa þörf á alþjóðlegri vernd.
  5. Einstaklinga sem þurfa að ferðast vegna brýnna aðstæðna í fjölskyldu sinni.
  6. Diplómata, starfsmenn alþjóðastofnana, meðlimi herliðs og starfsmenn sem sinna mann­úðar­aðstoð.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, með síðari breytingum, og öðlast hún þegar gildi.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 20. mars 2020.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 20. mars 2020