Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1056/2022

Nr. 1056/2022 12. september 2022

GJALDSKRÁ
velferðarsviðs Reykjavíkurborgar fyrir stuðningsþjónustu í formi þrifa.

1. gr.

Upphæð gjalds.

Gjald fyrir hverja unna vinnustund á dagvinnutíma vegna stuðningsþjónustu í formi þrifa á heimili er kr. 1.405.

Þjónusta í formi þrifa sem er umfram sex vinnustundir á mánuði á hvert heimili er endur­gjalds­laus.

 

2. gr.

Undanþága frá greiðslu/lækkun greiðslu.

Undanþegnir gjaldskyldu eru þeir notendur sem einungis hafa tekjur samkvæmt framfærslu­viðmiði Tryggingastofnunar ríkisins eða þar undir.

Þeir notendur stuðningsþjónustu sem hafa tekjur umfram tekjur frá Tryggingastofnun ríkisins eða samsvarandi fjárhæð greiða aldrei hærri upphæð fyrir þjónustu en sem nemur 50% af umfram­tekjum.

 

3. gr.

Gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett á grundvelli 2. mgr. 25. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 og 40. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Gjaldskrá þessi öðlast gildi við birtingu og fellur þá jafnframt úr gildi eldri gjaldskrá sama efnis, nr. 1560/2021.

 

Borgarstjórinn í Reykjavík, 12. september 2022.

 

Dagur B. Eggertsson.


B deild - Útgáfud.: 16. september 2022