Skipulagsstofnun staðfesti þann 21. ágúst 2017 breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem samþykkt var í borgarráði 6. júlí 2017. Í breytingunni felst að sett eru sérákvæði sem takmarka uppbyggingu hótela og gististaða í miðborgarkjarna (M1a). Bætt er við texta í skilgreiningu á M1a í kaflanum Landnotkun-skilgreiningar og í sértækum ákvæðum um hótel og gistirými auk þess sem töflu 3, Gististaðir, er breytt. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 21. ágúst 2017.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
Ottó Björgvin Óskarsson.
|