1. gr.
Sveitarstjórn Skorradalshrepps er heimilt, í samræmi við 5. gr. samþykktar nr. 632/2000 um sorphirðu (sorphreinsun og sorpeyðingu), að leggja á sérstakt gjald vegna sorphreinsunar og eyðingar sorps í Skorradalshreppi.
2. gr.
Gjaldið er árlega sem hér greinir:
Sorpgjald A |
Lögbýli með búskap |
25.200 kr. |
Sorpgjald B |
Tjaldsvæði og önnur atvinnustarfsemi |
25.200 kr. |
Sorpgjald C |
Lögbýli án búskapar |
18.200 kr. |
Sorpgjald D |
Frístundahús, fullgerð og í byggingu samkvæmt Þjóðskrá |
10.500 kr. |
Sorpgjald E |
Íbúðarhús |
18.200 kr. |
3. gr.
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Skorradalshrepps með stoð í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 809/2011 um sorphreinsun og eyðingu sorps í Skorradalshreppi.
Samþykkt í sveitarstjórn Skorradalshrepps 10. mars 2021.
Skorradal, 25. mars 2021.
Árni Hjörleifsson oddviti.
|