Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
1143/2021

Nr. 1143/2021 23. september 2021

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss vegna Hellu- og Holtagljúfurs, fjölgun íbúða á reit Í9.

Skipulagsstofnun staðfesti 23. september 2021 óverulega breytingu á aðalskipulagi Sveitar­félagsins Ölfuss 2010-2022, sem samþykkt var í bæjarstjórn 24. júní 2021.
Í breytingunni felst að heimilt verður að byggja allt að 60 íbúðir á reit Í9 í Hellu- og Holtagljúfri í stað allt að 40 íbúða.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 23. september 2021.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 8. október 2021