Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 305/2016

Nr. 305/2016 29. mars 2016

STARFSREGLUR
um breyting á starfsreglum um sóknarnefndir nr. 1111/2011.

1. gr.

7. töluliður 6. gr. starfsreglnanna fellur brott.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 15. gr. starfsreglnanna:

  1. Nýr 6. töluliður orðast svo: Kosning sóknarnefndar.
  2. Nýr 7. töluliður orðast svo: Kosning kjörnefndar.
  3. 6. töluliður verður 8. töluliður.
  4. 7. töluliður verður 9. töluliður.

2. mgr. 15. gr. starfsreglnanna hljóðar svo:

Um kosningu kjörnefndar er mælt fyrir í starfsreglum um val og veitingu prestsembætta nr. 144/2016.

3. gr.

Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóð­kirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi við birtingu.

Reykjavík, 29. mars 2016.

Egill H. Gíslason, varaforseti kirkjuþings.


B deild - Útgáfud.: 12. apríl 2016