Eftirtalin ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar felur í sér að tilteknar reglugerðir á sviði fjármálaþjónustu eru teknar upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 31/1993 þar sem samningurinn var upphaflega birtur:
- Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2020 frá 7. febrúar 2020, sjá fylgiskjal nr. 1 með auglýsingu þessari.
Sú ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar sem að framan greinir er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Birtingin er liður í undirbúningi þess að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fyrir Alþingi lagafrumvarp til innleiðingar á viðkomandi reglugerðum í íslenskan rétt, með þeim aðlögunum sem gerðar hafa verið við upptöku þeirra í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Sama ákvörðun verður jafnframt á síðara stigi birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 16. mars 2022.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Elísabet Júlíusdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|