Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1014/2021

Nr. 1014/2021 25. ágúst 2021

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Húnavatnshreppi.

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps samþykkti þann 22. júní 2021 nýtt deiliskipulag við Gedduhöfða á Grímstunguheiði. Deiliskipulagið felur í sér svæði fyrir gangnamannaskála, hesthús og rafstöð. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

 

Blönduósi, 25. ágúst 2021.

 

Þorgils Magnússon, skipulags- og byggingarfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 8. september 2021