Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 108/2019

Nr. 108/2019 2. september 2019

AUGLÝSING
um frestun á fundum Alþingis.

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra hefur forseti Íslands gefið út svofellt bréf um frestun á fundum Alþingis:

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 149. löggjafarþings, frá 2. september 2019 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 10. september 2019.

Gjört á Bessastöðum, 28. ágúst 2019.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Katrín Jakobsdóttir.“

Alþingi samþykkti hinn 2. september 2019 ályktun um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Samkvæmt framangreindu umboði og með skír­skotun til samþykkis Alþingis var fundum Alþingis, 149. löggjafarþings, frestað hinn 2. sept­ember 2019.

Forsætisráðuneytinu, 2. september 2019.

F. h. r.

Ragnhildur Arnljótsdóttir.

Ágúst Geir Ágústsson.


A deild - Útgáfud.: 3. september 2019