Hinn 9. og 22. mars 2010 var með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík gengið frá samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2010. Samningurinn öðlaðist gildi til bráðabirgða 22. mars 2010. Alþingi hafði hinn 18. maí 2010, með þingsályktun nr. 14/138, heimilað ríkisstjórninni að staðfesta samninginn.
Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 26. ágúst 2022.
F. h. r.
Martin Eyjólfsson.
|