Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti þann 16. apríl 2020 og bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkti þann 15. maí 2020 eftirfarandi breytingu á sameiginlegu deiliskipulagi Kjóavalla:
Kjóavellir, breyting á deiliskipulagi. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir breytingum á legu byggingarreita ofan götu í Rjúpnahlíð og svæði fyrir heygeymslu. Ekki er gert ráð fyrir breytingum innan lögsögu Kópavogs í þessari tillögu.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Garðabæ, 9. september 2020.
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri Garðabæjar. |
Birgir H. Sigurðsson skipulagsstjóri Kópavogsbæjar. |
|