Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 876/2019

Nr. 876/2019 24. september 2019

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna Hnauss II, Mosató 1, íbúðarbyggð.

Skipulagsstofnun staðfesti 24. september 2019 breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029, sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. apríl 2019.
Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni Mosató 1 úr landi Hnauss II er breytt úr frístunda­byggð í íbúðarbyggð (ÍB17).
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsstofnun, 24. september 2019.

F.h. forstjóra,

Hafdís Hafliðadóttir.

Ottó Björgvin Óskarsson.


B deild - Útgáfud.: 8. október 2019