Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 348/2019

Nr. 348/2019 29. mars 2019

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað.

Breyting á deiliskipulagi - Möðruvallastræti 9.
Skipulagssvið Akureyrarkaupstaðar hefur þann 27. mars 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Möðruvallastræti 9.
Breytingin felur í sér að núverandi bílskúr verður rifinn og nýr byggður í hans stað með lítils háttar stækkun.
Nýr bílskúr stendur á lóðarmörkum til norðurs og austurs og mun stækkun byggingarreits því vera til vesturs og suðurs.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 29. mars 2019,

Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.


B deild - Útgáfud.: 15. apríl 2019