Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 106/2020

Nr. 106/2020 7. febrúar 2020

AUGLÝSING
um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlutaðeigandi ráðherra, sbr. umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþága hvers þeirra endurskoðuð eigi síðar en 7. febrúar 2023:

  1. Landsvirkjun Power ehf.
  2. Orkufjarskipti hf.

 

2. gr. 

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.

 

Forsætisráðuneytinu, 7. febrúar 2020.

  

Katrín Jakobsdóttir.

Bryndís Hlöðversdóttir.

 


B deild - Útgáfud.: 13. febrúar 2020