Með orðsendingu dagsettri 16. janúar 2018 var utanríkisráðuneyti Danmerkur tilkynnt að Ísland hefði staðfest samninginn um að efla alþjóðlegt vísindasamstarf á norðurslóðum sem gerður var í Fairbanks 11. maí 2017 á milli ríkisstjórnar Kanada, ríkisstjórnar Konungsríkisins Danmerkur, ríkisstjórnar Lýðveldisins Finnlands, ríkisstjórnar Íslands, ríkisstjórnar Konungsríkisins Noregs, ríkisstjórnar Rússneska sambandsríkisins, ríkisstjórnar Konungsríkisins Svíþjóðar og ríkisstjórnar Bandaríkja Norður-Ameríku.
Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Tilkynnt verður um gildistöku samningsins síðar.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 5. júlí 2021.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
|