Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 788/2017

Nr. 788/2017 22. ágúst 2017

REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 896/2012 um hvaða flugrekendur heyra undir umsjón Íslands í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

1. gr.

Við 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr stafliður, h-liður, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/294 frá 20. febrúar 2017 um breytingu á reglugerð nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem getið er í viðauka I við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB frá 1. janúar 2006 eða eftir þann dag þar sem ábyrgðarríki hvers umráðanda loftfars er tilgreint, sem vísað er til í tölulið 21as, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 147/2017 frá 7. júlí 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48/2017 frá 3. ágúst 2017 – 2017/EES/48/37, bls. 610 – 802.

2. gr.

Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2017/294 frá 20. febrúar 2017 um breytingu á reglugerð nr. 748/2009 um skrána yfir umráðendur loftfara sem stunduðu flugstarfsemi sem getið er í viðauka I við tilskipun 2003/87/EB sem vísað er til í tölulið 21as, III. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 147/2017 frá 7. júlí 2017.

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 4. mgr. 16. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 22. ágúst 2017.

Björt Ólafsdóttir.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 7. september 2017