Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1376/2019

Nr. 1376/2019 23. desember 2019

GJALDSKRÁ
velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um ferðaþjónustu fatlaðs fólks.

1. gr.

Greiðsla.

Gjald fyrir hverja ferð hjá ferðaþjónustu fatlaðs fólks skal miðast við hálft almennt gjald hjá Strætó bs. samkvæmt gjaldskrá hverju sinni.

2. gr.

Gjaldskylda ónýttrar þjónustu.

Greiða skal fyrir pantaðar ferðir þegar forföll hafa ekki verið tilkynnt. Afpöntun ferðar skal vera með sem mestum fyrirvara, helst deginum áður en í undantekningartilvikum tveimur klukkustundum fyrir fyrirhugaða ferð. Að öðrum kosti telst ferðin með í uppgjöri.

3. gr.

Gildistaka.

Gjaldskráin er sett í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar um ferðaþjónustu fatlaðs fólks nr. 292/2018, sbr. 29. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, sbr. 5. gr. laga nr. 37/2018.

Gjaldskrá þessi var samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkur þann 5. nóvember 2019 og tekur gildi frá og með 15. janúar 2020. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1234/2018.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 23. desember 2019.

Dagur B. Eggertsson.


B deild - Útgáfud.: 13. janúar 2020