Á fundi skipulagsnefndar Skaftárhrepps 11. desember 2018 og á fundi sveitarstjórnar Skaftárhrepps 13. desember 2018 var samþykkt óveruleg breyting á deiliskipulagi Hólaskjóls. Breytingin felur í sér að skipulagsmörk deiliskipulagsins eru minnkuð og er stærð skipulagssvæðisins þá 4,4 ha. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin öðlast þegar gildi.
Kirkjubæjarklaustri, 21. desember 2018.
Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfulltrúi.
|