Desjakór 2. Breytt deiliskipulag. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, hefur bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkt þann 12. nóvember 2019 tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina að Desjakór 2. Í breytingunni felst að lóðin stækkar um 87 m². Heildarstærð lóðarinnar eftir stækkun verður því 929 m². Málsmeðferð var skv. 43. gr. ofangreindra laga. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Skipulagið öðlast þegar gildi.
Fagraþing 3. Breytt deiliskipulag. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010, hefur bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkt þann 26. nóvember 2019 tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina að Fagraþingi 3. Í breytingunni felst heimild til að byggja glerskála 48,6 m² að flatarmáli yfir þaksvalir. Hámarkshæð er 7,5 m miðað við aðkomuhæð. Málsmeðferð var skv. 43. gr. ofangreindra laga. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Skipulagið öðlast þegar gildi.
Kópavogi, 7. janúar 2020.
Birgir Hlynur Sigurðsson skipulagsstjóri.
|