Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 42/2018

Nr. 42/2018 23. maí 2018

LÖG
um brottfall laga um Lífeyrissjóð bænda, nr. 12/1999, með síðari breytingum.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

    Lög um Lífeyrissjóð bænda, nr. 12/1999, með síðari breytingum, falla úr gildi 1. júlí 2018.

2. gr.

    Frá og með 1. desember 2018 skal Lífeyrissjóður bænda starfa á grundvelli laga um skyldu­tryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, með síðari breytingum, og sam­þykkta er fyrir sjóðinn gilda. Stjórn Lífeyrissjóðs bænda skal aðlaga samþykktir sjóðsins ákvæðum laga nr. 129/1997 og leggja þær þannig breyttar fyrir ráðherra til staðfestingar, sbr. 28. gr. lag­anna, eigi síðar en 1. október 2018.

3. gr.

    Útgjöld vegna lífeyrisgreiðslna sem falla á sjóðinn vegna áunninna réttinda sjóðfélaga sem fæddir eru 1914 eða fyrr eða maka þeirra skulu greidd úr ríkissjóði.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 23. maí 2018.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.


A deild - Útgáfud.: 25. maí 2018