Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1020/2021

Nr. 1020/2021 24. ágúst 2021

REGLUGERÐ
um velferð sjávarspendýra við fiskveiðar og fiskeldi í sjó.

1. gr.

Tilgangur og gildissvið.

Tilgangur reglugerðarinnar er að tryggja velferð sjávarspendýra sem gætu orðið fyrir skaða við fiskveiðar og fiskeldi í sjó.

 

2. gr.

Bann við að skaða sjávarspendýr af ásetningi.

Óheimilt er við fiskveiðar eða við fiskeldi í sjó að skaða sjávarspendýr af ásetningi, þ. á m. að fanga, særa eða veiða sjávarspendýr. Um meðferð sjávarspendýra við fiskveiðar eða við fiskeldi í sjó fer að öðru leyti eftir lögum um velferð dýra.

 

3. gr.

Viðurlög.

Brot gegn reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 55/2013, um vel­ferð dýra.

 

4. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 46. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra. Reglu­gerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. ágúst 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Kolbeinn Árnason.


B deild - Útgáfud.: 9. september 2021