Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kunngjörir hér með að hann hefur staðfest starfsreglur stjórnar Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóðs, sem settar eru á grundvelli 1. tölul. 2. mgr. 4. gr. og 8. gr. laga um Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóð, nr. 65/2020, og samþykktar hafa verið af stjórn Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóðs. Starfsreglurnar eru birtar sem fylgiskjal með auglýsingu þessari og taka gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. september 2021.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Sigrún Brynja Einarsdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|