Óveruleg breyting á deiliskipulagi miðbæjar og hafnarsvæðis. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar, með vísan til a-liðar 6. gr. samþykktar um skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar um fullnaðarafgreiðslu án staðfestingar bæjarstjórnar, 2. maí 2022, óverulegar breytingu á deiliskipulagi miðbæjar og hafnarsvæðis. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér stækkun á byggingarreit á lóðinni við Miðgarð 3 vegna áætlana um byggingu viðbyggingar við þegar byggt mannvirki á lóðinni. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grindavíkurbæ, 1. júní 2022.
Atli Geir Júlíusson skipulagsfulltrúi.
|