Skipulagsstofnun staðfesti 24. september 2021 breytingu á aðalskipulagi Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn Múlaþings 18. ágúst 2021. Í breytingunni er gert ráð fyrir snjóflóðavörnum undir Bjólfshlíðum á opnu svæði til sérstakra nota, skógræktar- og landgræðslusvæði og afþreyingar- og ferðamannasvæði. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 24. september 2021.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
|