Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 255/2020

Nr. 255/2020 11. mars 2020

AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.

Korngarðar 2 og Sundabakki 2-4.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án stað­festingar borgarráðs, þann 5. febrúar 2020, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða vegna lóðanna nr. 2 við Korngarða og 2-4 við Sundabakka. Í breytingunni felst að færa lóðarmörk ásamt því að lóðastærð er lagfærð til samræmis við fasteignaskrá. Tillagan hefur hlotið með­ferð sam­kvæmt 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi. 

Vesturgata 6-10A.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkur­borgar, þann 10. janúar 2020, breytingu á deiliskipulagi Naustareits vegna lóðarinnar nr. 6-10A við Vesturgötu. Í breytingunni felst að heimilt er að koma fyrir svölum á austurenda Vesturgötu 6-8 og endurbyggja svalir með tröppum á Vesturgötu 10. Gististarfsemi er heimiluð á 2. hæð Vesturgötu 6‑8. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breyt­ingin öðlast þegar gildi.

 

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 11. mars 2020.

 

Björn Axelsson.


B deild - Útgáfud.: 25. mars 2020