1. gr.
Sveitarstjórn Dalabyggðar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Dalabyggð og hreinsun rotþróa í Dalabyggð skv. gjaldskrá þessari og samþykkt nr. 198/2004 um fráveitur í Dalabyggð.
2. gr.
Stofngjald fyrir tengingu og lagningu frárennslislagna við holræsakerfi sveitarfélagsins skal vera:
Fyrir einbýlishús |
58.613 kr. |
á hvert hús |
Fyrir fjölbýlishús |
19.534 kr. |
á hverja íbúð |
Fyrir annað húsnæði |
45 kr. |
á hvern m³ í húsnæðinu að 4.000 m³ |
|
23 kr. |
á hvern m³ > 4.000 m³ |
Ef um tvöfalt frárennsliskerfi er að ræða skulu ofangreindar tölur margfaldaðar með tveimur.
3. gr.
Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Fráveitugjald skal nema 0,17% af álagningarstofni. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.
4. gr.
Rotþróargjald fyrir hverja rotþró skal vera eftirfarandi árlega:
Stærð í lítrum |
kr. |
|
0-2.000 |
8.115 |
|
2.001-4.000 |
10.181 |
|
4.001-6.000 |
11.592 |
|
6.001-8.000 |
14.325 |
|
8.001-10.000 |
18.942 |
|
Rotþró > 10.000 |
5.414 |
pr. umframrúmmetra |
Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 10 metra. Fyrir hverja 10 metra umfram það skal greiða kr. 3.229. Rotþró er tæmd þriðja hvert ár. Ákveði eigandi/forráðamaður eignar að tæma oftar greiðir hann allan kostnað af slíku.
5. gr.
Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.
6. gr.
Gjaldskrá þessi sem var samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 12. desember 2020 staðfestist hér með samkvæmt 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009 og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1302/2018.
Búðardal, 12. desember 2019.
Kristján Sturluson sveitarstjóri.
|