Nýtt deiliskipulag fyrir íbúðarsvæði ÍB-4 í Áshamri. Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar á fundi sínum þann 28. mars 2019 deiliskipulagstillögu fyrir Áshamar 1-75. Í deiliskipulaginu er m.a. gert ráð fyrir 54 nýjum íbúðum í raðhúsum, fjórbýlishúsum og fjölbýlishúsum. Deiliskipulagið hefur hlotið málsmeðferð skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagið öðlast þegar gildi.
F.h. bæjarstjórnar Vestmannaeyja, 24. apríl 2019,
Sigurður Smári Benónýsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
|