Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 54/2020

Nr. 54/2020 16. júní 2020

LÖG
um ferðagjöf.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

 

1. gr.

    Ferðagjöf er stafræn 5.000 kr. inneign útgefin af stjórnvöldum til einstaklinga 18 ára eða eldri með íslenska kennitölu og með skráð lögheimili á Íslandi.

    Einstaklingur getur notað ferðagjöf til greiðslu hjá fyrirtækjum sem uppfylla eitt af eftirfarandi skilyrðum og hafa starfsstöð á Íslandi:

  1. Fyrirtækjum með gilt leyfi Ferðamálastofu skv. III. kafla laga um Ferðamálastofu, nr. 96/2018.
  2. Fyrirtækjum með gilt rekstrarleyfi skv. 7. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmt­ana­hald, nr. 85/2007.
  3. Fyrirtækjum með gilt starfsleyfi frá viðeigandi heilbrigðisnefnd sem hefur verið gefið út fyrir veitingastað í flokki I, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmt­ana­hald, nr. 85/2007.
  4. Ökutækjaleigum með gilt starfsleyfi frá Samgöngustofu skv. 1. mgr. 3. gr. laga um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015.
  5. Söfnum og fyrirtækjum sem bjóða sýningu gegn endurgjaldi þar sem áhersla er á íslenska menningu, sögu eða náttúru.

    Einstaklingi er heimilt að gefa eigin ferðagjöf.

    Einstaklingur getur að hámarki greitt með 15 ferðagjöfum.

    Gildistími ferðagjafar er frá útgáfudegi til og með 31. desember 2020.

 

2. gr.

    Ferðagjöf er undanþegin skattskyldu skv. 4. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003.

 

3. gr.

    Hvert fyrirtæki getur að hámarki tekið við samanlagt 100 millj. kr. greiðslu í formi ferðagjafa.

    Fyrirtæki sem metið var í rekstrarerfiðleikum 31. desember 2019 getur að hámarki tekið við saman­lagt 25 millj. kr. greiðslu í formi ferðagjafa.

 

4. gr.

    Ferðamálastofa hefur eftirlit með framkvæmd laga þessara.

 

5. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

Gjört á Bessastöðum, 16. júní 2020.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.


A deild - Útgáfud.: 22. júní 2020