Óveruleg breyting á deiliskipulagi í Skaftafelli. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum 12. maí 2021 óverulega breytingu á deiliskipulagi í Skaftafelli. Óveruleg breyting á deiliskipulagi var samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar 8. október 2020. Í hönnunarferli hefur afstaða skemmunnar breyst lítillega, var því óskað eftir að bæjarstjórn samþykkti óverulega breytingu á byggingarreit skemmunnar. Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og ekki er þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin hefur í engu áhrif á grennd. Deiliskipulagsbreytingin öðlast þegar gildi.
Sveitarfélaginu Hornafirði, 25. maí 2021.
Brynja Dögg Ingólfsdóttir, umhverfis- og skipulagsstjóri.
|