Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 960/2019

Nr. 960/2019 21. október 2019

REGLUGERÐ
um takmarkanir við veiðum með fiskibotnvörpu.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um takmarkanir við veiðum með fiskibotnvörpu í fiskveiðilandhelgi Íslands.

2. gr.

Á „Mehlsack“.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 63°26,77´N – 25°23,25´V
  2. 63°06,50´N – 24°44,30´V
  3. 63°03,36´N – 24°55,51´V
  4. 63°19,00´N – 25°32,00´V
  5. 63°21,95´N – 25°39,65´V

Þrátt fyrir ofangreint bann er þó heimilt á tímabilinu frá og með 1. febrúar til og með 15. apríl að stunda veiðar innan svæðisins.

3. gr.

Í Jökuldýpi.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 64°10,00´N – 25°37,00´V
  2. 63°53,00´N – 25°07,00´V
  3. 63°50,00´N – 25°40,00´V
  4. 63°50,00´N – 26°09,00´V
  5. 63°53,00´N – 26°13,00´V
  6. 64°00,50´N – 26°07,66´V

Þrátt fyrir ofangreint bann er þó heimilt á tímabilinu frá og með 1. október til og með 1. apríl að stunda veiðar innan svæðisins frá kl. 20.00 að kvöldi til kl. 8.00 að morgni.

4. gr.

Suðvestur af Malarrifi.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 64°29,70´N – 24°33,00´V
  2. 64°30,80´N – 24°26,40´V
  3. 64°30,00´N – 24°25,60´V
  4. 64°28,60´N – 24°32,00´V

5. gr.

Í Víkurál.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 66°04,00´N – 26°29,00´V
  2. 66°00,00´N – 26°26,00´V
  3. 65°57,00´N – 26°33,00´V
  4. 65°44,00´N – 26°35,00´V
  5. 65°49,00´N – 26°57,00´V
  6. 66°00,00´N – 26°50,00´V

Þrátt fyrir ofangreint bann er þó heimilt á tímabilinu frá kl. 20.00 að kvöldi til kl. 08.00 að morgni að stunda veiðar innan svæðisins.

6. gr.

Norður af Horni.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar á tímabilinu frá og með 1. mars til og með 17. ágúst á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 66°36,40´N – 23°22,00´V
  2. 66°42,50´N – 23°42,50´V
  3. 66°57,50´N – 22°00,00´V
  4. 67°02,00´N – 22°00,00´V
  5. 67°02,94´N – 21°45,00´V
  6. 66°29,20´N – 21°45,00´V

Að sunnan afmarkast svæðið af línu sem dregin er í 12 sjómílna fjarlægð frá viðmiðunarlínu, sbr. lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

7. gr.

Á Sporðagrunni.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 66°34,42´N – 20°20,50´V
  2. 66°38,44´N – 20°16,67´V
  3. 66°47,37´N – 19°52,94´V
  4. 66°51,60´N – 19°21,89´V
  5. 66°38,32´N – 19°24,68´V

8. gr.

Norðan Haganesvíkur.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 66°22,10´N – 19°32,30´V
  2. 66°26,99´N – 19°32,94´V
  3. 66°29,48´N – 18°58,76´V
  4. 66°23,98´N – 18°53,78´V

Að sunnan afmarkast svæðið af línu sem dregin er í 12 sjómílna fjarlægð frá viðmiðunarlínu, sbr. lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

9. gr.

Á Sléttugrunni.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 67°07,00´N – 17°24,00´V
  2. 67°07,00´N – 17°20,00´V
  3. 66°51,00´N – 17°04,00´V
  4. 66°51,00´N – 17°20,00´V

10. gr.

Á Digranesflaki.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 66°12,00´N – 13°48,00´V
  2. 66°23,00´N – 12°51,00´V
  3. 66°14,00´N – 12°40,00´V
  4. 66°03,00´N – 12°36,80´V
  5. 66°00,00´N – 12°51,80´V
  6. 65°59,00´N – 13°34,00´V

11. gr.

Við Hrollaugseyjar.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 64°11,00´N – 15°42,50´V
  2. 63°57,70´N – 15°28,70´V
  3. 63°54,20´N – 15°46,50´V
  4. 63°54,00´N – 15°59,00´V
  5. 64°02,00´N – 16°11,20´V

12. gr.

Fyrir Suðurlandi.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið innan þriggja mílna frá fjörumarki megin­landsins á svæði er markast að austan af línu sem dregin er réttvísandi suður frá 64°14,1´N – 14°58,4´V Stokksnesvita og að vestan af línu sem dregin er réttvísandi suður frá 63°48,0´N – 22°41,9´V Reykjanesvita.

13. gr.

Umhverfis Vestmannaeyjar.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið innan línu sem dregin er í þriggja sjómílna fjarlægð frá fjörumarki eftirgreindra eyja og skerja: Elliðaeyjar, Bjarnareyjar, Heimaeyjar, Suður­eyjar, Helliseyjar, Súlnaskers, Geirfuglaskers, Geldungs, Álseyjar, Grasleysu, Þrídranga og Eini­drangs. Að norðan markast svæðið af línu sem dregin er í þriggja sjómílna fjarlægð frá fjörumarki meginlandsins, sbr. reglugerð nr. 732/1997 um bann við veiðum milli lands og Vestmannaeyja.

Þrátt fyrir ofangreint bann er þó heimilt á tímabilinu frá og með 21. febrúar til og með 15. maí að stunda veiðar innan svæðisins með fótreipisvörpu, á svæði vestan línu sem dregin er í réttvísandi norður frá Heimaey, þannig að austurkant Ystakletts og Faxaskersvita beri saman og norðan og vestan línu sem dregin er frá Heimaey um Grasleysu í Þrídranga, þaðan í Einidrang og síðan í réttvísandi suður.

Fótreipisvarpa er varpa sem búin er fótreipi gerðu úr vír eða keðju sem skífur, körtur úr gúmmíi eða gerviefni er þrætt upp á, enda sé heildarþvermálið ekki meira en 20 sm.

14. gr.

Norðvestur af Heimaey.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 63°38,00´N – 20°34,00´V
  2. 63°30,70´N – 20°18,50´V
  3. 63°30,19´N – 20°16,24´V
  4. 63°27,00´N – 20°20,00´V
  5. 63°32,00´N – 20°34,00´V

15. gr.

Á Álseyjarbleyðu.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 63°22,00´N – 20°24,00´V
  2. 63°22,00´N – 20°30,00´V
  3. 63°26,00´N – 20°28,00´V
  4. 63°26,00´N – 20°22,00´V

16. gr.

Á Eyrarbakkabug.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 63°39,00´N – 20°34,00´V
  2. 63°32,00´N – 20°34,00´V
  3. 63°35,00´N – 21°00,00´V
  4. 63°46,00´N – 21°00,00´V

17. gr.

Á Tánni.

Veiðar með fiskibotnvörpu eru óheimilar á tímabilinu frá og með 1. júní til og með 31. október á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 63°10,00´N – 22°00,00´V
  2. 63°09,20´N – 21°55,50´V
  3. 63°05,40´N – 22°09,00´V
  4. 63°02,80´N – 22°23,50´V
  5. 63°03,00´N – 22°31,00´V
  6. 63°06,00´N – 22°41,00´V
  7. 63°09,20´N – 22°46,00´V
  8. 63°11,00´N – 22°42,00´V
  9. 63°05,00´N – 22°24,00´V

18. gr.

Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

19. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglugerð nr. 162/2002, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu suðvestur af Malarrifi, reglugerð nr. 875/2005, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu í Víkurál, reglugerð nr. 861/2006, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu norð­vestur af Heimaey, reglugerð nr. 100/2008, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu í Eyrar­bakka­bug, reglugerð nr. 520/2010, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Álseyjarbleyðu og reglu­gerð nr. 1065/2013, um friðun veiðisvæða fyrir Suðurlandi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. október 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 4. nóvember 2019