Sameining lóða - Deiliskipulag Hellnahrauns, 3. áfanga, Búðahella 8 og Dofrahella 13. Í samræmi við skipulaglög nr. 123/2010 og deiliskipulagsskilmála Hellnahrauns, 3. áfanga, samþykkti skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar á fundi sínum þann 20. október 2020, sameiningu lóðanna Búðahellu 8 og Dofrahellu 13 og tilfærslu/fjölgun innkeyrslna. Breytingin öðlast þegar gildi.
Breyting á deiliskipulagi Hellnahrauns, 3. áfanga, Borgahella 6a. Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum þann 28. október 2020 breytingu á deiliskipulagi Hellnahrauns, 3. áfanga. Í breytingunni felst mörkun nýrrar lóðar fyrir dælustöð, Borgahellu 6a. Lóðin er á horni Borgahellu og Búðahellu og er 96 m² að stærð. Málsmeðferð deiliskipulagsbreytingarinnar var samkvæmt 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis á Hvaleyrarholti, lóð nr. 2 við Grandatröð. Í samræmi við skipulagslög samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum þann 28. október 2020 breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis á Hvaleyrarholti vegna lóðar nr. 2 við Grandatröð. Í breytingunni felst að byggingarreitur lóðarinnar stækkar og bílastæðum fjölgar. Málsmeðferð deiliskipulagsbreytingarinnar var samkvæmt 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Hafnarfirði, 2. nóvember 2020.
Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi.
|