1. gr.
e-liður 3. mgr. 2. gr. reglnanna fellur brott.
2. gr.
Við 6. gr. reglnanna bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
- yfirfara drög að umsögnum um lagafrumvörp og drög að reglum þegar um er að ræða álitaefni um vinnslu persónuupplýsinga. Stjórnarformaður getur ákveðið að drög að umsögn verði lögð fyrir stjórn til samþykktar.
3. gr.
Reglur þessar eru settar með stoð í 3. mgr. 38. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og öðlast gildi þegar í stað.
Þannig samþykkt á fundi stjórnar Persónuverndar, 22. september 2021.
Ólafur Garðarsson.
Björn Geirsson. |
Vilhelmína Haraldsdóttir. |
Þorvarður Kári Ólafsson. |
|